Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1566751159.31

    Deildun, föll og markgildi
    STÆR3DF05
    95
    stærðfræði
    deildun, föll, markgildi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Meginefni áfangans eru föll, markgildi, deildareikningur og kynning á heildun. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Föll: Veldisföll, vísisföll, lograföll, andhverf föll, samskeytt föll, eintæk, átæk og gagntæk föll. Markgildi og deildun: Markgildishugtakið. Skilgreining á afleiðu falls. Deildun veldisfalla, vísisfalla, lografalla og hornafalla. Reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla. Samfeldni og deildanleiki falla. Aðfellur. Hagnýting deildunar við könnun falla, s.s. að finna staðbundin hágildi og lággildi, einhallabil, beygjuskil og jöfnu snertils. Gröf falla. Notkun deildareiknings við hagnýt viðfangsefni, t.d. útreikning á hraða og hröðun. Söguleg þróun deildareiknings.
    STÆR3HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Veldis-, vísis- og lograföllum
    • Samskeyttum, eintækum, átækum og gagntækum föllum
    • Markgildishugtakinu
    • Skilgreiningu á afleiðu falls
    • Deildun ofangreindra falla
    • Samfeldni og deildanleika falla
    • Aðfellum
    • Hagnýtingu deildunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Vinna með vísis- og lograföll með mismunandi grunntölum
    • Finna andhverfur falla og að skeyta saman föllum
    • Nota markgildi og skilgreiningu á afleiðu falls
    • Deilda veldisföll, vísisföll, lograföll og hornaföll og að nota reiknireglur fyrir deildun margfeldis, ræðra falla og samskeyttra falla
    • Nota deildareikning við könnun falla, einkum að finna staðbundin útgildi, einhallabil, beygjuskil, jöfnu snertils, aðfellur og að teikna gröf falla og að kanna samfeldni og deildanleika falla
    • Leysa hagnýt dæmi þar sem beita þarf deildun, eins og útreikningum á vegalengd, hraða eða hröðun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja upp margvísleg verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu ásamt því að vinna með þau
    • Beita gagnrýnni hugsun og skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir
    • Koma orðadæmum á stærðfræðilegt form og túlka lausnina
    • Átta sig á ólíkum aðferðum við framsetningu hugmynda og viðfangsefni áfangans
    • Skrá vinnu sína á skipulegan hátt og geta rökstutt lausnir sínar
    • Skilja röksemdir í texta og á munnlegan hátt
    • Leysa verkefni áfangans á frumlegan hátt
    • Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þ.m.t. sannanir úr námsefninu
    Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar