Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1566750748.53

    Hornaföll, vigrar, pólhnit og keilusnið
    STÆR3HV05
    97
    stærðfræði
    hornaföll, vigrar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Hornafræði þar sem nemendur vinna mikið með hornaföllin og gröf þeirra. Áhersla er lögð á sannanir og skýra stærðfræðilega framsetningu. Efnisþættir áfangans eru: Hornaföll: Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi, hornafallareglur, almenn skilgreining hornafalla, umritanir með hornaföllum, hornafallajöfnur og ójöfnur, gröf hornafalla, bogamál. Vigrar: Vigrar í sléttum fleti, samlagning, lengd, samsíða og hornréttir vigrar, hnit, innfeldi, horn milli vigra, miðpunktur striks. Keilusnið: Hringir, sporbaugar, fleygbogar og breiðbogar.
    STÆR2AM05 og STÆR2RF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hornaföllum og hornafallareglum
    • Hornafallajöfnum og ójöfnum
    • Gröfum hornafalla og bogamáli
    • Vigrum í sléttum fleti
    • Reikniaðgerðum með vigra
    • Hornum milli vigra
    • Keilusniði, hringum, sporbaugum, fleygbogum og breiðbogum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Finna lengdir og horn í rétthyrndum og órétthyrndum þríhyrningum og flatarmál þeirra
    • Einfalda og umrita stæður sem innihalda hornaföll og leysa hornafallajöfnur og ójöfnur
    • Finna lotu, útslag og hliðrun hornafalla og teikna gröf þeirra eða lesa úr gröfum
    • Breyta gráðum í bogamál og öfugt
    • Beita helstu reiknireglum vigurreiknings, t.d. að finna hnit vigra, lengd þeirra, innfeldi tveggja vigra og horn milli vigra
    • Finna miðju og radíus hrings út frá jöfnu hans, eða öfugt, m.a. með því að fylla í ferninginn og vinna á samsvarandi hátt með jöfnur sporbauga og breiðboga
    • Sanna einfaldar reglur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja upp margvísleg verkefni með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu ásamt því að vinna með þau
    • Beita gagnrýnni hugsun og skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir
    • Koma orðadæmum á stærðfræðilegt form og túlka lausnina
    • Átta sig á ólíkum aðferðum við framsetningu hugmynda og viðfangsefni áfangans
    • Skrá vinnu sína á skipulegan hátt og geta rökstutt lausnir sínar
    • Skilja röksemdir í texta og á munnlegan hátt
    • Leysa verkefni áfangans á frumlegan hátt
    • Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þ.m.t. sannanir úr námsefninu
    Námsmat fer fram með fjölbreyttum og sífelldum hætti þ.a. öll verkefni gilda til einkunnar