Í þessum áfanga munu nemendur lesa þýddar skáldsögur og vinna verkefni út frá aðferðafræði bókmenntaritgerða. Þess er krafist að nemandi sýni sjálfstæð vinnubrögð og að ritun sé skýr. Unnið verður með hraðlestur til lestraryndis. Nemendur halda dagbók fyrir lestur og túlkun auk þess sem þeir skrifa eina bókmenntaritgerð. Reglulega verða umræðutímar þar sem nemendur deila reynslu sinni af lestri bókmenntanna.
ÍSLE2MÁ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum við bókmenntaritgerð
öðlist leikni í að lesa bókmenntaverk og túlka þau
góðu íslensku ritmáli
umfjöllun bókmennta á vandaðan hátt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
beita góðu máli í ræðu og riti
hafa gott vald á ritmáli
fjalla um bókmenntir af víðsýni
greina álitamál sem fjallað er um í bókmenntum
vinna á sjálfstæðan hátt undir leiðsögn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa ritgerð á skýran og greinargóðan hátt
beita góðri málnotkun og nota skýra frásögn
draga ályktanir á faglegan og heiðarlegan hátt
rökstyðja eigin skoðun á faglegan hátt og virða ólíkar skoðanir annarra í umræðutímum
geta fjallað um bókmenntaverk úr frá hugtökum bókmenntafræðinnar