Í þessum áfanga kynnast nemendur Vesturferðum Íslendinga með áherslu á íslenskt tungumál, vesturíslensku eins og hún hefur verið nefnd. Nemendur kynnast samfélagsbreytingum sem áttu sér stað og hvað varð um íslenskuna i í Norður-Ameríku hjá vesturförunum. Skoðað verður hvernig málnotkun og orðaforði íslenskunnar þróaðist án tengsla við íslenskuna sem töluð var á Íslandi. Tengsl enskunnar og íslenskunnar verður skoðuð með tilliti til nýs tungumáls sem Íslendingar tileinkuðu sér. Hljóðkerfi, beygingar, flámæli sem er algengt í vesturíslensku og aðrar beygingarmyndir verða teknar til umræðu og hvernig það var notað í vesturíslensku. Nemendur munu vinna saman að upplýsingaöflun og velja efni til að gera skapandi verkefni, auk þess sem reynt verður að koma á rafrænum samskiptum við nemendur í Kanada.
ÍSLE2MÁ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögulegum tengslum tungumáls og menningar
formlegri menntun í íslensku vestan hafs
enskum tökuorðum í vesturíslensku
sögum um vesturíslensku
íslenskum mannanöfnum í Vesturheimi
örnefnum af íslenskum uppruna
íslenskri málvernd í Vesturheimi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vera þátttakandi í umræðum um vesturíslensku og Vesturferðir
skilja tengsl tungumáls og menningar
nýta sér hjálpargögn og gagnasöfn
afla fræðilegra heimilda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta mikilvægi tungumáls og menningar
vinna skapandi verkefni í tengslum við ungt fólk í Vesturheimi ef áhugi er fyrir hendi