Í þessum áfanga eru nemendur þjálfaðir í ritun texta þar sem stuðst er við aðferðafræði heimildaritgerða. Nemendur vinna að lokaverkefni í íslensku þar sem nemandi aflar sér heimilda á íslensku, bæði forn-og nútímamáli. Þess er krafist að nemandi sýni sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði við skráningu heimilda og að ritun sé skýr. Nemendur hitta kennara einu sinni í viku og gera grein fyrir vinnuframlagi sínu í hvert skipti sem þeir hitta kennarann/leiðbeinanda sinn.
Nemandi þarf að hafa lokið 15 einingum í íslensku, þar af 5 einingum á 3. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum við heimildaritgerð
lestur fræðigreina og mikilvægi þeirra
góðu íslensku ritmáli
helstu reglum og skráningu við meðferð heimilda
sjálfstæðum vinnubrögðum við öflun heimilda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla fræðilegra heimilda
vinna samkvæmt viðurkenndri aðferðafræði
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
beita góðu máli í ræðu og riti
hafa gott vald á ritmáli
vinna á sjálfstæðan hátt undir leiðsögn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa ritgerðir á skýran og greinargóðan hátt
beita góðri málnotkun og nota skýra frásögn
draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum
draga ályktanir á faglegan og heiðarlegan hátt
geta fjallað um bókmenntaverk úr frá hugtökum bókmenntafræðinnar