Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1557844541.14

    Leiklist og leikbókmenntir
    ÍSLE3LI05
    84
    íslenska
    Leiklist og leikbókmenntir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum kynnast nemendur leiklist og leikhúslífinu. Fjallað verður um sögu íslenskrar leikritunar og skoðuð helstu einkenni bókmenntagreinarinnar með það að markmiði að auka skilning nemenda á leikbókmenntum og leiklist. Mikilvægi þess að kynnast innra starfi leikhússins er að fara á æfingar og sýningar í leikhúsi. Nemendur taka þátt í umræðum að lokinni leiksýningu. Nemendum gefst einnig kostur á að fá áfangann metinn ef þeir taka þátt í uppfærslu á leikverki en þurfa þó að skila skýrslu um ferlið frá leiklestri að leiksýningu.
    ÍSLE2MÁ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu atriðum í sögu íslenskrar leikritunar
    • íslenskum leikverkum
    • þeim þáttum sem eru mikilvægir í undirbúningi leiksýningar
    • sagnahefð og frásagnarlist
    • gildi og mikilvægi samvinnu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • efla framfarir og hópavinnu
    • lesa leikverk og skilja einkenni bókmenntagreinarinnar
    • taka þátt í umræðum um leikverk
    • öðlast æfingu í raddbeitingu og líkamsþjálfun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • færa hugmynd í handrit
    • yfirfæra texta í ýmiss konar stílbrigði leikforms
    • skilja texta persóna og samhengi bókmenntagreinarinnar og leikverks
    • að líkja eftir raunveruleika sögunnar
    • taka þátt í uppfærslu á leikverki
    • beita skapandi aðferðum í leiklist
    • þjálfa grunntækni í listsköpun
    • herma eftir látbragði annarra
    • að gera sögu lifandi fyrir augum áhorfenda