Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1557844068.39

    Íslenska í rafrænu samfélagi
    ÍSLE3ÍR05
    89
    íslenska
    Íslenska í rafrænu samfélagi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga verður unnið sérstaklega með samfélagsmiðla og fréttaveitur og áhrif þeirra á íslenskt mál. Lögð verður áhersla á orðaforða, málvillur, mismunandi texta, orðtök og setningafræði. Skoðaðar verða auglýsingar og fyrirsagnir í blöðum/vefmiðlum mismunandi gerðir ritsmíða s.s. fréttir, blaðagreinar, samskipta-og skoðanakerfi. Nemendur munu fá þjálfun í að skrifa hnitmiðaða fréttatilkynningar, auglýsingar og frásagnir úr viðtölum. Lokaverkefni er tímarit þar sem nemendur munu vinna í hópum að birtingu efnis með íslenskt gott mál að leiðarljósi.
    ÍSLE2MÁ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi orðaforða, góðri málfræði og stafsetningu
    • algengum málvillum
    • mismunandi tegundum nytjatexta
    • að hugsa á gagnrýninn hátt
    • ritmáli og talmáli
    • mikilvægi þess að setja upplýsingar fram á skýran og greinagóðan hátt
    • fjölbreyttum aðferðum til að koma efni frá sér á prenti
    • úrvinnslu gagna og uppsetningu efnis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota algengan og sértækan orðaforða og átta sig á málvillum
    • skilja og nota algeng stílbrögð í tal-og ritmáli
    • rita mismunandi tegundir texta í samfelldu máli
    • auka orðaforða og málsskilning
    • tileinka sér aðferðafræði ritunar í fréttamennsku
    • taka saman upplýsingar, svo sem myndir og texta og setja í viðeigandi form
    • meta málfar og uppbyggingu á eigin texta og annarra á gagnrýninn hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
    • styrkja eigin málfærni og málnotkun
    • nota gott mál í ræður og riti
    • skrifa íslenskan texta án algengra málvillna
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá skoðanir sínar og færa rök fyrir máli sínu
    • túlka texta með rökstuðningi
    • hagnýta sér málfræði-og stafsetningarreglur
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar
    • skrifa margs konar ritsmíðar í ákveðnum skrefum
    • vinna úr upplýsingum og útbúa grein til birtingar
    • safna saman upplýsingum með ólíkum hætti, svo sem úr viðtölum, skoðanakönnunum eða með öðrum hætti
    • ganga frá texta á viðunandi og skýran hátt
    • fullvinna tímarit á vandaðan hátt