Í áfanganum verður farið yfir helstu atriði bókmenntasögunnar á 20. og 21. öldinni sem var mikill umbrotatími í sögu íslensku þjóðarinnar og íslenskra bókmennta. Nýir tímar tóku við af fornum lífsháttum og munu nemendur kynnast höfundum og verkum þeirra sem spegla þessa breytingu. Þessari bókmenntasögu er þó ekki ætlað að vera tæmandi því hér er á ferð áfangi sem er brotleiftur úr þessu frjóa tímabili bókmenntanna. Skáld og rithöfundar þessa tímabils tjá sig í ljóðum, smásögum, skáldverkum og ævisögum og er sá fróðleikur hugsaður til að kveikja frekari vinnu með tiltekna höfunda og verk. Unnið verður að því að auka bókmenntalegt læsi og efla færni nemanda til margs konar ritunar, setja saman eigin texta og rýna í verk annarra.
ÍSLE2MÁ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
bókmenntasögu 20. og 21. aldar og áhrifum erlendra menningarstrauma á íslenskar bókmenntir
mikilvægu hlutverki bókmennta í samfélaginu
helstu höfundum og verkum á tímabilinu
að þjálfast í lestri, greiningu og túlkun bókmenntatexta
mikilvægi þess að temja sér fagleg og árangursrík vinnubrögð við textarýni og ritun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa eina skáldsögu og túlka hana bæði í ræðu og riti
meta áhrif menningarstrauma á bókmenntir
verða hæfari í formlegum ritsmíðum
afla sér fræðsluefnis og leita hjálpargagna við skrif
beita skapandi skrifum undir leiðsögn kennara
efla færni nemanda til ritunar og umræðu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
semja eigin texta til ritunar og upplestur bæði i bundnu og lausu máli
öðlast aukið sjálfstraust á sviði sköpunar og læsis
vinna að bókmenntakynningu
mynda sér skoðun og rökstyðja bæði í ræðu og riti
bæta læsi sitt og taka afstöðu til bókmennta þessa tímabils í ræðu og riti