Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1557842800.02

    Afþreyingarbókmenntir og íslenskar kvikmyndir
    ÍSLE3AK05
    82
    íslenska
    Afþreyingarbókmenntir og kvikmyndir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga kynnast nemendur afþreyingarbókmenntum. Það verður lögð verður áhersla á einkenni, form, útbreiðslu og vinsældir þeirra. Nemendur kynna sér hvernig þjóðfélagið endurspeglast í afþreyingarbókmenntaverkum og bera saman við aðra texta með tilliti til málnotkunar og málfars. Nemendur fá tækifæri til að lesa afþreyingarbókmenntaverk sem hefur verið kvikmyndað og felst verkefnið í samanburði á túlkun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu hugtökum bókmennta-og kvikmyndafræði
    • einkennum og inntaki afþreyingabókmennta í ljósi sögunnar
    • byggingu, formi, málfari og orðaforða afþreyingabókmennta
    • þróun íslenskra kvikmynda
    • straumum og stefnum í íslenskri kvikmyndagerð
    • orðaforða í kvikmyndum
    • grunnatriðum í myndvinnslu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til gagns
    • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
    • skýra frá innihaldi bókmenntaverka í ræðu og riti
    • skilja og nota bókmennta-og kvikmyndafræðihugtök
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka kvikmyndir og tengja við menningarlega þætti
    • vinna skapandi verkefni
    • túlka texta afþreyingarbókmennta og greina merkingu undir yfirborðinu
    • vera þátttakandi í umræðum um íslenskar kvikmyndir
    • bera saman afþreyingarbókmenntir við kvikmynd
    • skrifa gagnrýni um bókmenntir og kvikmynd á eigin skoðunum