Í þessum áfanga verður fjallað almennt um barnabókmenntir, svo sem myndabækur, sögur, ljóð, ævintýri og kvikmyndir. Nemendur kynnast helstu einkennum, formi, útbreiðslu og vinsældum barnabóka. Nemendur kynna sér ýmis verk og gera grein fyrir persónusköpun, málnotkun, framsetningu, túlkun og tilgangi barnabókmennta-og kvikmynda/myndformi. Sýndar verða valdar kvikmyndir og nemendum gefst kostur á að vinna verkefni í myndrænni framsetningu, til dæmis í formi stuttmynda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
inntaki, einkennum og túlkun barnabókmennta
mismunandi frásagnaraðferð og framsetningu
tengslum barnabókmennta við þroska, samfélag og menningu
málfari og orðaforða í barnabókmenntum
túlkun barnabókmennta í kvikmyndum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita gagnrýninni hugsun við verkefnavinnu
lesa sér til gagns barnabókmenntir ásamt fræðitextum
að skilja og nota bókmennta-og kvikmyndafræðihugtök
að greina barnabókmenntir og kvikmyndir við strauma og stefnur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt að verkefnum í tengslum við barnabókmenntir og fræðilega umfjöllun
beita góðu máli í ræðu og riti
tjá afstöðu og efasemdir um efni og komast að niðurstöðu
bera saman barnabókmenntir við aðrar bókmenntir
skoða uppeldisgildi barnabókmennta með tilliti til aldursþroska barna
taka þátt í umræðum um barnabókmenntir og barnakvikmyndir