Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1557841385.65

    Mál- og menningarsaga, goðafræði og heimildaritgerð
    ÍSLE2MÁ05
    57
    íslenska
    Mál- og menningarsaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga verður til umfjöllunar norræn goðafræði og mál-og menningarsaga þar sem unnin verða margvísleg einstaklings-og hópaverkefni. Til að auka góðan orðaforða og málfræðiþekkingu verður lögð áhersla á formlegt mál þar sem krafist er að nemendur hafi öll grunnhugtök málfræði og stafsetningar vel á valdi sínu. Farið verður yfir helstu atriði heimildaritgerða og um leið unnið með lesskilning og málnotkun.
    ÍSLE2LR04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögulegum tengslum tungumáls og menningar
    • meginatriðum íslenskrar málsögu
    • heimssögu norrænnar goðafræði og fornum kvæðum
    • helstu mállýskum á Íslandi
    • ritun frá upphafi til okkar daga
    • uppruna og skyldleika orða
    • helstu hugtökum í ritgerðasmíð
    • grunnhugtök málfræði og setningafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fornan texta og kvæði
    • beita góðri orðræðu og málfræði
    • vera þátttakandi í umræðum um íslenska málstefnu og samanburð við önnur tungumál
    • tileinka sér aðferðafræði heimildaritgerða
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kunna skil á norrænni goðafræði
    • skilja tengsl tungumáls og menningar
    • meta mikilvægi íslenskrar málstefnu og viðhalda góðu málfari
    • fullvinna heimildaritgerð
    • tjá sig í ræðu og riti um valda kjörbók