Í áfanganum verður byrjað á að vinna með hraðlestur þar sem hann eykur minni og einbeitingu. Það verður lögð áhersla á aukinn orðaforða, stafsetningu, málfræði, og hagnýt skrif. Lesnar verða smásögur og skáldsögur til að bæta lesskilning og þjálfa ritun. Einnig verður farið yfir helstu atriði í aðferðafræði bókmenntaritgerða og að lokum skrifa nemendur bókmenntaritgerð út frá skáldsögu að eigin vali.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eigin leshraða
kostum hraðlesturs
málsniði og orðaforða
góðri málfræði og stafsetningu
mikilvægi lestrar og lesskilnings
ritmáli og talmáli
helstu málfræðihugtökum
helstu tegundum bókmennta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka leshraða og bæta málskilning
rita mismunandi tegundir texta í samfelldu máli
auka orðaforða og málsskilning
nýta sér hjálpargögn við réttritun
tileinka sér aðferðafræði bókmenntaritgerða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hagnýta sér þekkingu aukins lestrarhraða
hagnýta sér málfræði-og stafsetningarreglur
tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar