Lestur sérhæfðra fagtexta: Nemendur lesa sérhæfðari og faglegri texta en áður og er ætlunin sú að textarnir séu fræðilegir og tengist á einhvern hátt því sviði sem nemendur hyggjast leggja áherslu á í námi sínu til stúdentsprófs.
Ritun fagtexta: Nemendur þjálfast í ritun faglegra enskra texta, geti skrifað slíka texta og fylgt þá einnig grunnreglum málfræði og réttritunar. Nemendur þurfa að geta nýtt orðaforða sinn og orðabækur ásamt öðrum hjálpargögnum, málnotkunarbækur, leiðréttingarforrit og tölvu- og upplýsingatækni til þess að skrifa góða og faglega texta.
Tjáning: Nemendur þjálfast í að kynna efni á faglegan hátt, setja upp kynningar, fræðast um líkamstjáningu og líkamsstöðu við flutning faglegs máls ásamt því hvernig best er að flytja enskt faglegt mál með áherslu á framburð og framkomu.
ENSK2MY05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
því hvernig lesa á sérhæfðari faglega texta sér til gagns og gamans
ritun faglegra enskra texta, notkun grunnreglna enskrar málfræði og réttritunar, að nýta orðaforða sinn og orðabækur til að skrifa góða og faglega texta
tjáningu faglegs efnis, hvernig koma má efni frá sér á árangursríkan hátt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sérhæfða faglega texta og nýta sér upplýsingar úr þeim
rita faglega texta á ensku, nota grunnreglur enskrar málfræði og réttritunar ásamt því að nýta orðaforða og orðabækur til þess að skrifa góða og faglega texta á ensku
tjá faglegt efni á árangursríkan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa sérhæfða faglega texta, skilja þá og túlka ásamt því að geta greint á milli aðalatriða og aukaatriða
rita góða faglega enska texta, nota grunnreglur enskrar málfræði og réttritunar ásamt því að nýta orðaforða og orðabækur á viðeigandi hátt til ritunar enskra faglegra texta
tjá sig um fagleg mál á árangursríkan og faglegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Verkefni og kynningar gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.