Aðal áhersla áfangans er á bókmenntir, lestur og ritun. Nemendur lesa 2 bækur, aðra velur kennari en hina nemandinn sjálfur. Kennari velur bók sem allir nemendur lesa og taka kannanir úr en hlutverk þeirra er aðallega að meta lesskilning nemenda. Þá velja nemendur sér kjörbók undir leiðsögn kennara og skrifa svo ritgerð um efni hennar þar sem áhersla er lögð á túlkun og skilning nemandans á enskum bókmenntum. Þá verður stiklað á stóru í bókmenntasögu Englands og Bandaríkjanna og fjallað um helstu höfunda, strauma og stefnur.
Lestur enskra bókmennta: Nemendur lesa enskar bókmenntir og texta um bókmenntasögu Englands og Bandaríkjanna. Mikilvægt er að nemendur skilji textana vel, kunni að lesa á milli línanna og afli sér upplýsinga um höfunda, velti því fyrir sér hvaða máli verkin sem þeir lesa hafi skipt samfélagið á þeim tíma sem þau komu út, hvort höfundar hafi fylgt ríkjandi stefnu síns tíma eða ekki og svo framvegis.
Ritun - samhengi í ensku ritmáli: Nemendur þjálfast í ritun ensks máls og að tjá skoðanir sínar og gagnrýni á góðri og formlegri ensku. Þeir geti skrifað lengri texta á góðu máli, fylgt grunnreglum málfræði, réttritunar og setningafræði ásamt því að setja textann vel upp varðandi efnisgreinar og skipan. Nemendur þurfa að geta nýtt orðaforða sinn og orðabækur ásamt öðrum hjálpargögnum, málnotkunarbækur, leiðréttingarforrit og tölvu- og upplýsingatækni til þess að skrifa réttan og góðan texta.
Hlustun: Nemendur fá að heyra hljóðdæmi úr ýmsum áttum til þess að öðlast betri innsýn inn í það samfélag sem einkenndi líftíma höfundar hverju sinni. Þá verður kennari með kynningar á bókmenntasögu Englands og Bandaríkjanna og fjallar um helstu höfunda, strauma og stefnur.
ENSK2MY05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig lesa á og túlka enskar bókmenntir
hvernig á að afla sér þekkingar á samfélagi rithöfunda mismunandi tíma
helstu straumum og stefnum í bókmenntum Englands og Bandaríkjanna í gegnum tíðina
hvernig skrifa á gagnrýna ritgerð um bókmenntaverk á góðu ensku máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa, skilja og túlka enskar bókmenntir
afla sér þekkingar á einkennum samfélags á mismunandi tímum
afla sér þekkingar um helstu strauma og stefnur í bókmenntum Englands og Bandaríkjanna í gegnum tíðina
skrifa á góðu ensku máli gagnrýna ritgerð um bókmenntaverk
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa enskar bókmenntir, skilja þær og túlka
kynna sér mismunandi gerðir samfélaga á mismunandi tímum og áhrifin sem þau hafa á rithöfunda hverju sinni
kynna sér helstu strauma og stefnur í bókmenntum Englands og Bandaríkjanna í gegnum tíðina og áhrifin sem þær hafa á rithöfunda og verk þeirra
skrifa gagnrýnar ritgerðir um bókmenntir og bókmenntaverk á góðu ensku máli
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Ritgerð, kannanir og ástundun gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.