Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1554120612.02

    Málsvæði og menning
    ENSK3MK05
    74
    enska
    málsvæði og kúltúr
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Lögð verður áhersla á málsvæði og menningu enskumælandi landa. Nemendur fræðast um mismunandi málnotkun enskunnar eftir svæðum, til dæmis hvað varðar orðaforða, framburð og annað, ásamt því sem nemendur læra um mismunandi menningar þessara svæða. Nemendur afla sér þekkingar á svæðunum með því að lesa og hlusta á efni frá svæðunum og um þau. Þá vinna nemendur ritunarverkefni og kynna verkefni sín fyrir samnemendum. Hlustun: Nemendur hlusta á margvíslegt efni sem samsvarar efni áfangans í heild, frá mismunandi málsvæðum og um menningu þeirra. Þeir læra að draga út upplýsingar, tileinka sér ný orð og hlusta eftir framburði flóknari orða. Þeir læra að skilja almennt talmál í samræðum ásamt einföldu, ótextuðu sjónvarpsefni, útvarpsefni, dægurlagatextum og öðru margmiðlunarefni. Lestur sérhæfðra texta: Nemendur lesa sérhæfða texta en áður og er ætlunin sú að textarnir séu fræðilegir og tengist efni áfangans hvað varðar málsvæði og menningu enskumælandi landa. Ritun - samhengi í ensku ritmáli: Nemendur þjálfast í ritun ensks máls, geti skrifað stutta texta, fylgt grunnreglum málfræði og réttritunar. Nemendur þurfa að geta nýtt orðaforða sinn og orðabækur ásamt öðrum hjálpargögnum, málnotkunarbækur, leiðréttingarforrit og tölvu- og upplýsingatækni til þess að skrifa réttan og góðan texta. Tjáning: Nemendur vinna kynningar úr þeim upplýsingum sem þeir hafa aflað sér með lestri og hlustun og kynna fyrir samnemendum sínum. Þannig fá þeir þjálfum í að tala enskt mál og sýna fram á að upplýsingaöflun þeirra hafi borið árangur og að þeir skilji viðfangsefnið vel.
    ENSK2MY05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig skilja á almennt talmál ásamt fræðilegu tali í samræðum, sjónvarpi, útvarpi, dægurlagatextum og öðru margmiðlunarefni
    • því hvernig lesa á sérhæfðari texta sér til gagns og gamans
    • ritun ensks máls, notkun grunnreglna enskrar málfræði og réttritunar, að nýta orðaforða sinn og orðabækur til að skrifa rétta og góða texta
    • því hvernig á að tjá sig á ensku máli og kynna niðurstöður upplýsingaöflunar fyrir öðrum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • draga út upplýsingar úr töluðu máli eftir mismunandi þörfum hverju sinni
    • lesa sérhæfða texta og nýta sér upplýsingar úr þeim
    • rita stutta texta á ensku, nota grunnreglur enskrar málfræði og réttritunar til þess að skrifa góða texta, nýta orðaforða og orðabækur sér til stuðnings til þess að skrifa góða enska texta
    • kynna niðurstöður sínar fyrir öðrum á ensku talmáli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja almennt og fræðilegt talmál í samræðum, sjónvarpi, útvarpi, dægurlagatextum og öðru margmiðlunarefni
    • lesa sérhæfða texta og nýta sér þá lestrartækni sem þeir hafa þjálfað með sér til að nýta lesturinn í verkefni eða annað slíkt
    • rita góða enska texta, nota grunnreglur enskrar málfræði og réttritunar til ritunar enskra texta, nota orðaforða og orðabækur á viðeigandi hátt til ritunar enskra texta
    • útbúa kynningu á niðurstöðum sínum og kynna þær á skýran og afmarkaðan hátt fyrir öðrum með notkun ensks talmáls
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Verkefni og kannanir gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.