Lögð verður sérstök áhersla á lestur og málnotkun, bæði skriflega og munnlega. Þá verður einnig farið í setningafræði.
Yndislestur: Nemendur lesa bók eða aðra texta á ensku sér til fróðleiks og skemmtunar. Ætlunin er að hvetja nemendur til að opna huga sinn fyrir því að lesa á ensku, sér til skemmtunar.
Ritun skipulegra texta: Nemendur læra að rita skipulega texta, setja saman misflóknar setningar, auka- og aðalsetningar. Þá þurfa þeir að geta skipt texta skipulega upp í efnisgreinar og hagað málnotkun sinni með tilliti til þess markhóps sem skrifað er til (geti notað formlegt og óformlegt mál).
Tjáning: Nemendur læra að taka þátt í almennum samræðum á ensku t.d. innan kennslustofunnar við skólafélaga, kennara og aðra af kurteisi og með viðeigandi orðalagi. Þá geti nemandi geti sagt frá sjálfum sér og nánasta umhverfi, áhugamálum, o.s.frv.
Málfræði - setningafræði: Farið verður í setningarfræði enskrar málfræði, enda-spurningar, beinar og óbeina ræðu, tilvísunar- og skilyrðissetningar, samtengingar og tengiorð og ritun flóknari setninga.
ENSK2MR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
viðfangsefni og orðaforða þeirrar bókar sem hann valdi sér til lesturs
því hvernig taka á þátt í almennum samræðum á ensku, nota viðeigandi orðalag í ensku talmáli og hvernig nota á enskt talmál til þess að kynna sig og aðstæður sínar
skipulegri uppsetningu texta, aðal- og aukasetningum, skiptingu texta upp í efnisgreinar, viðeigandi málnotkun m.t.t. markhóps og formlegu og óformlegu máli
setningafræði enskrar málfræði, notkun endaspurninga, beinni og óbeinni ræðu, tilvísunar- og skilyrðissetningum, notkun samtenginga og tengiorða og ritun flóknari setninga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja viðfangsefni enskra texta og lesa enska texta sér til skemmtunar
taka á þátt í almennum samræðum á ensku og nota viðeigandi orðalag
setja upp skipulega texta, nota aðal- og aukasetningar eftir því sem við á, skipta texta upp í efnisgreinar, nota viðeigandi mál m.t.t. markhóps og greina á milli formlegs og óformlegs máls
rita enskar setningar samkvæmt þeim reglum sem gilda í setningafræði enskrar málfræði og þá einnig flóknari setningar, nota endaspurningar þegar það er viðeigandi, greina á milli beinnar og óbeinnar ræðu og nota viðeigandi form hverju sinni, nota tilvísunar- og skilyrðissetningar þegar það er viðeigandi og nota samtengingar og tengiorð á réttan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa enska texta sér til skemmtunar og geta útskýrt viðfangsefni enskra texta
taka þátt í almennum samræðum á ensku með notkun viðeigandi orðalags í ensku talmáli
setja upp skipulega texta, nota aðal- og aukasetningar á viðeigandi hátt, skipta texta upp í efnisgreinar, nota viðeigandi mál m.t.t. markhóps, greina á milli formlegs og óformlegs máls og vita hvenær viðeigandi er að nota það
rita enskar setningar samkvæmt þeim reglum sem gilda í setningafræði enskrar málfræði og þá einnig flóknari setningar, nota endaspurningar, tilvísunar- og skilyrðissetningar, samtengingar og tengiorð þegar það er viðeigandi og á réttan hátt, greina á milli beinnar og óbeinnar ræðu og nota viðeigandi form hverju sinni
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Verkefni og kannanir gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.