Lögð verður sérstök áhersla þrjá þætti enska tungumálsins: málfræði, ritun og lesskilning. Auk þess verður lítillega farið í hlustun og skilning almenns talaðs máls.
Málfræði: Farið verður í ákveðinn og óákveðinn greini, orðflokka og helstu einkenni hvers orðflokks fyrir sig. Lýsingarorð verða stigbreytt, farið yfir gerðir fornafna, eignarfall nafnorða kynnt, farið yfir forskeyti og viðskeyti ásamt myndun nýrra orða af ólíkum orðflokkum. Þá verður farið yfir algengustu tíðir sagna, óreglulegar sagnir, samband frumlags og umsagnar, myndun sambandssagna, þolmynd og germynd sagna, notkun sagnanafnorða og/eða nafnháttar með ákveðnum sögnum og háttarmyndandi sagnir.
Skapandi skrif: Nemendur læra að tjá sig skriflega í ritunarverkefnum þar sem reynir á ímyndunarafl og skapandi notkun málsins. Þá þurfa þeir að geta beitt meginreglum enskrar málfræði, setningafræði og stafsett rétt. Þeir setja fram mál sitt á sjálfstæðan, skipulegan og hnitmiðaðan hátt.
Lesskilningur: Nemendur lesa margvíslega texta í þeim tilgangi að þeir þjálfist í að notfæra sér orðabækur við lestur og beita mismunandi lestrarlagi þ.e. nákvæmnislestri, yfirlitslestri, hraðlestri og leitarlestri eftir aðstæðum.
Hlustun - almennt efni: Nemendur hlusta á margvíslegt efni, læra að draga út upplýsingar, tileinka sér ný orð og hlusta eftir framburði flóknari orða. Þeir læra að skilja almennt talmál í samræðum ásamt einföldu, ótextuðu sjónvarpsefni, útvarpsefni, dægurlagatextum og öðru margmiðlunarefni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum enskrar málfræði
þeim ýmsu gerðum og myndum sagna sem enska tungumálið inniheldur og hvernig nota á viðeigandi myndir sagna við ólíkar aðstæður
hvernig þeir eiga að tjá sig skriflega í skapandi skrifum, nýta málfræði, setningafræði og stafsetningarreglur við ritun texta og hvernig setja á fram ritað mál á sjálfstæðan, skipulegan og hnitmiðaðan hátt
því hvernig nota á mismunandi lestrartækni og hjálpargögn eftir tilgangi lestursins
hvernig skilja á almennt talmál í samræðum, sjónvarpi, útvarpi, dægurlagatextum og öðru margmiðlunarefni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota enska málfræði á réttan hátt, bæði í töluðu og rituðu máli
velja viðeigandi gerðir og myndir sagna til notkunar í ólíkum setningum hverju sinni
tjá sig og sínar hugmyndir með vel unnum og skapandi skrifum
notfæra sér mismunandi lestrartækni og hjálpargögn eftir tilgangi lestursins
draga út upplýsingar úr töluðu máli eftir mismunandi þörfum hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nota málfræðilega réttar setningar í töluðu og rituðu máli enskrar tungu
nota viðeigandi gerðir og myndir sagna til notkunar í ólíkum setningum hverju sinni
tjá sig skriflega á skapandi hátt og nýta til þess alla þekkingu sína á enska tungumálinu
lesa og skilja enska texta af mismunandi tagi og nota mismunandi lestrartækni og hjálpartæki við lestur ólíkra texta eftir tilgangi lestursins
skilja almennt talmál í samræðum, sjónvarpi, útvarpi, dægurlagatextum og öðru margmiðlunarefni
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Verkefni og kannanir gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.