Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490876230.33

    Framhaldsáfangi í íslenku á almennri námsbraut
    ÍSLE1AS04
    64
    íslenska
    Almenn námsbraut framhald
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í þessum framhaldsáfanga er haldið áfram að bæta lestrarkunnáttu og lesskilning, einnig færni í ritun, stafsetningu og frekari þekkingu í málfræði.
    ÍSLE1AN04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi lestraraðferðum
    • orðaforða umfram það sem tíðkast í talmáli,
    • ýmsum ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli,
    • nokkrum helstu hugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir,
    • mikilvægi þess að geta tjáð sig í ræðu og riti.
    • helstu málfræðihugtökum í framhaldi af því sem kynnt er í undanfara
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til gagns og gamans texta sem gera kröfur til lesenda
    • skilja algengt líkingamál og orðatiltæki
    • skrifa ýmsar tegundir texta í samfelldu máli mismunandi blæbrigðum og málsniði í tal- og ritmáli
    • safna saman aðalatriðum í fyrirlestrum og ritmáli, leyta upplýsinga og nýta þær
    • taka saman og flytja stuttar endursagnir og kynningar á afmörkuðu efni
    • geta nýtt sér ýmis kennslu- og leiðréttingaforrit
    • nýta algengustu hugtök í málfræði í uppbyggingu eigin málfærni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið
    • nýta sér orðasöfn (þjónustu) á bókasafni og á interneti
    • nýta sér þekkingu og samstarf við kennara og samnemendur í samvinnu við lausnir verkefna
    • skerpa á athygli, beita virkri hlustun og leggja sitt að mörkum við að skapa góðan vinnuanda í kennslustofunni
    • verða fær um að hefja frekara nám í íslensku á öðrum námsbrautum
    Í áfanganum er símat alla önnina, þá er stöðumat tvisvar á önn. Verkefni, dagfar, viðvera og vinnusemi, ábyrgð og framfarir – allt er þetta metið í lokin. Þá má reikna með æfingum eða stuttum prófum (könnunum) í einstaka námsþáttum.