Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490875809.59

    Grunnáfangi í íslensku á almennri námsbraut
    ÍSLE1AN04
    63
    íslenska
    Almenn námsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í þessum fyrri áfanga í íslensku á almennri námsbraut er lögð mikil áhersla á þjálfun lesturs og vinnu með texta. Unnið er markvisst að því að auka leshraða nemenda og lesskilning. Þá er stafsetning þjálfuð, einnig grunnatriði málfræðinnar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi lestrar, bæði til gagns og gamans
    • helstu málfræðihugtökum og stafsetningarreglum sem nýtast í rituðu máli.
    • helstu aðferðum og hugtökum við útdráttagerð og samningu styttri skriflegra og munnlegra verkefna
    • mikilvægi auðugs orðaforða og málskilnings
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hlusta á annað fólk og taka þátt í samræðum um daginn og veginn
    • nýta sér almenna létta texta á íslensku sér til gagns og gamans
    • skrifa létta og meðfærilega texta í samfelldu máli
    • nota almenn og algeng málfræðihugtök og reglur við skrifleg og munnleg verkefni
    • taka saman og flytja stuttar endursagnir, lýsingar og kynningar
    • finna nothæfa vefi á netinu sér til gagns við íslenskunámið og nýta sér aðstoð á bókasafni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka og leggja mat á mismunandi persónur í bókum og öðrum frásögnum
    • semja stutta texta af ýmsu tagi með viðeigandi málfari
    • halda uppi samræðum og rökstyðja eigin fullyrðingar og skoðanir
    • nýta sér fjölbreytileg hjálpargögn, s.s. orðasöfn, námsvefi og algengustu málfræðihugtök
    Í áfanganum er símat alla önnina, þá er stöðumat tvisvar á önn. Verkefni, dagfar, viðvera og vinnusemi, ábyrgð og framfarir – allt er þetta metið í lokin. Einnig eru styttri próf og skriflegar æfingar í einstökum námsþáttum.