Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490820359.19

    Íþróttír og heilsurækt
    ÍÞRÓ3AA01
    1
    íþróttir
    almennar íþróttir A
    Samþykkt af skóla
    3
    1
    AA
    Nemendur leggja stund á a.m.k. eina keppnisíþrótt hjá íþróttafélagi, setja sér markmið fyrir þau mót/kappleiki sem í boði eru á önninni, gera æfingaáætlun í samvinnu við þjálfara og skipuleggja mælingar á þeim þáttum sem best eru til þess fallnir að meta árangur æfinganna. Nemendur æfa síðan samkvæmt áætlun, framkvæma mælingar og endurmeta markmiðin eftir því sem fram líður. Nemendur velja sér þá keppnisíþrótt sem þeir kjósa sér. Þeir taka þátt í mótum/kappleikjum sem í boði eru á önninni þar sem takmarkið er að ná settum markmiðum.
    ÍÞRÓ2AA01
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppsetningu æfingaáætlana og undirbúnings fyrir keppni
    • markmiðasetningu, bæði líkamlegri og andlegri
    • helstu möguleikum til að meta og mæla árangur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útbúa æfingaáætlun fyrir sjálfan sig í samstarfi við yfirþjálfara
    • setja sér raunhæf og mælanleg markmið fyrir keppni
    • framkvæma mælingar til að meta árangur af sínum æfingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja sína eigin æfingaáætlun útfrá sínum eigin kröfum og markmiðum með tilliti til þátttöku í keppni
    • setja sér raunhæf og mælanleg markmið og geti endurskoðað og bætt við eftir því sem við á samhliða æfingum sínum og milli keppna
    • mæla og meta árangur af sínum æfingum og æfingaáætlun og nýta mælingarnar til að uppfæra markmið sín og bregðast þannig við niðurstöðunum
    • bregðast við óvæntum breytingum sem geta komið upp, s.s. meiðslum o.fl.,og þannig endurskipulagt áætlanir sínar ef þess þarf
    Nemendur þurfa að fá 30 skráðar mætingar á æfingar til að áfanginn teljist staðinn. Námsmatið stendur yfir alla önnina. Nemendur þurfa að skila inn æfingaáætlun yfir þá keppnisgrein sem þeir kjósa að stunda, setja sér raunhæf og mælanleg markmið, fylgja sinni áætlun eftir eins og kostur er og breyta henni ef þurfa þykir og framkvæma mælingar 2 - 3 á tímabilinu til að fylgjast með árangri æfinga. Nemendur þurfa að taka þátt í a.m.k. 2 mótum/kappleikjum.