Viðfangsefni áfangans er menningarsaga Rómönsku Ameríku frá hámenningarsamfélögum frumbyggja fyrir komu Kólumbusar fram til dagsins í dag. Fjölbreytt og litríkt mannlíf hefur mótað Rómönsku Ameríku og er svæðið að sama skapi margbreytilegt að landgæðum, þjóðarsamsetningu og tungumálum. Markmið áfangans er að nemendur kynnist í stórum dráttum sögu Rómönsku Ameríku og ákveðnum menningarþáttum svæðisins. Jafnframt að nemendur íhugi samspil sögunnar við margbreytileg- og nútímasamfélög sem við sjáum í fjölmiðlum í dag.
SAGA2ÍM05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu atburðum úr sögu Rómönsku Ameríku sem vísað er til í samtímanum
helstu hugtökum, kenningum og viðfangsefnum úr menningarsögu Rómönsku Ameríku
áhrifum kynhlutverka og stéttarskiptingar í Rómönsku Ameríku
hlutverki og mikilvægi trúarbragða í sögu og menningu Rómönsku Ameríku
meginstiklum í tækni-, vísinda- og atvinnuþróun Rómönsku Ameríku
mikilvægi ólíkra menningar og stjórnkerfa Rómönsku Ameríku fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun
mismunandi sjónarhorn á samfélagsleg gildi og siðferði í sögu Rómönsku Ameríku
örlögum og sögu mismunandi frumbyggjahópa í Rómönsku Ameríku
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
flytja framsögu um afmarkað sögulegt efni
greina fjölbreytt orsakasamhengi og rannsaka afmörkuð söguleg efni
leita sér að gagnlegum heimildum
setja fram söguleg viðfangsefni á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt
skrifa texta sem byggja á ítarlegri heimildaöflun og úrvinnslu gagna
sýna sjálfstæði og sköpun í verkefnavali og verkefnaúrlausnum
taka þátt í umræðum og verja rökstudda afstöðu sína
vinna að verkefnum með samnemendum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa heimildir um sögu og menningu Rómönsku Ameríku á gagnrýninn hátt
meta umfjöllun um Rómönsku Ameríku í nútímamiðlum
taka frumkvæði í þekkingaröflun og verkefnavali og nálgast þau á faglegan hátt
taka siðferðislega afstöðu til ólíkra atburða og málefna Rómönsku Ameríku
taka þátt í málefnalegum umræðum og rökræðum um sögu og samfélag Rómönsku Ameríku
útskýra viðhorf fólks og samfélaga Rómönsku Ameríku til ýmissa málefna
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.