Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490798917.94

    Líffæra- og lífeðlisfærði mannsins 3
    LÍOL3LC05
    6
    líffæra og lífeðlisfræði
    Líffæra- og lífeðlisfræði mannsins 3
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Á fyrrihluta annarinnar eru eftirfarandi viðfangsefni tekin fyrir: Sogæða- og ónæmiskerfin. Orkukerfi líkamans (ATP-PCr, oxunarkerfið og sykurrofskerfið). Áhrif umhverfisins á líkamann við þjálfun (þjálfun í hita, kulda og í hæð). Áhrif þjálfunar á hjarta og beinagrindarvöðva. Á seinni hluta annarinnar vinna nemendur viðamikið verkefni tengt viðfangsefnum úr öllum áföngum líffæra- og lífeðlisfræði mannsins.
    LÍOL3LB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hver orkukerfi líkamans eru, hvernig þau virka og hversu mikið þau afkasta
    • hvaða áhrif þjálfun í mismunandi umhverfi hefur á líkamsstarfsemina
    • hvernig hjartað starfar annars vegar í hvíld og hins vegar við álag
    • byggingu beinagrindarvöðva, hvernig þeir dragast saman og hvernig þeir stækka við langvarandi álag
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta hversu mikið hvert orkukerfi er í virkni við mismunandi álag og mismunandi tímalengdir
    • átta sig á hvernig frumur ónæmiskerfisins vinna saman að því verkefni að vernda líkamann gegn sýkingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • finna heimildir um viðfangsefnið á ensku
    • lesa og skilja heimildir um viðfangsefnið á ensku
    • meta gæði heimilda um viðfangsefnið
    • útskýra viðfangsefnið fyrir öðrum
    • taka þátt í umræðu um viðfangsefnið á uppbyggilegan hátt
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.