Í áfanganum eru valin tímabil og svið til fjölþættrar könnunar. Nemendur kryfja viðfangsefni í ljósi margra þátta, t.d. myndlistar, bygginga, bókmennta, heimspeki og félagsgerðar. Áhersla er á eftirtalda þætti: Grísk klassík, Rómarmenning, heimur miðalda, rómantík, aldamótin 1900 og nútímalist og tíðarandi.
Fimm einingar í sögu á öðru þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægum þáttum vestrænnar menningar og menningarsögu
því hvernig unnið hefur verið úr menningarlegri arfleifð vestrænna samfélaga
því hversu víðfeðmt og margslungið menningarhugtakið er
fræðigreininni sagnfræði og getið lesið fræðigreinar sagnfræðinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða og greina margvíslega þræði menningarinnar
leita sér að gagnlegum heimildum og að skoða mismunandi heimildir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta af öryggi komið fram og kynnt tiltekin viðfangsefni í menningarsögu
meta með gagnrýnum hætti ólíka frumtexta, eftirheimildir og myndefni
skoða hluti frá ólíkum sjónarhornum og ræða álitamál og öndverð viðhorf í heimspeki
Símat alla önnina þar sem öll verkefni, viðvera og ástundun skipta máli.