Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490796748.89

    Fjölmenning og nýir samfélagsþegnar
    FJÖM1AN02
    1
    fjölmenning
    Almenn námsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í þessum áfanga er stefnt að því að fræða nemdur um mikilvægi þess að þekkja og skilja að einhverju leyti hugtakið fjölmenning og hvað felst í því að lifa í fjölmenningarsamfélagi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Því hvað felst í hugtakinu fjölmenning/fjölmenningarhyggja
    • Hvernig við skilgreinum fjölmenningarlegt samfélag.
    • Þeim árekstrum/vandamálum sem kunna á koma upp þar sem saman kemur fólk af mismunandi menningarheimum
    • Hvernig við Íslendingar skiljum og skilgreinum mismunandi menningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina og skilja hvað átt er við þegar talað er um fjölmenningu
    • Skoða og skilgreina mismunandi sjónarmið og skoðanir
    • Fjalla um mismunandi menningu með skilningi og umburðarlyndi
    • Rannsaka og kynnast þeim hefðum og siðum er liggja til grundvallar mismunandi siðum og menningu. Að forðast fordóma
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Mynda sér skoðanir og koma þeim á framfæri
    • Finna og meta mismunandi heimildir um þessi mál
    • Greina og meta fjölmiðlaumræðu hér um fjölmenningarmál.
    • Geta leitt saman ólíkar skoðanir og ágreiningsmál og sýnt þeim virðingu.
    Í áfanganum er símat alla önnina. Verkefni, dagfar, viðvera og vinnusemi, ábyrgð og framfarir – allt er þetta metið í lokin. Nemendur halda dagbók/skrá yfir það sem lesið er