Haldið er áfram frá fyrri áfanga að bæta lestur, m.t.t. leshraða, lesskilnings og aukins orðaforða.
LESA1AN03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Eigin lestrarkunnáttu og hvernig má á árangursríkan hátt bæta hana
Mikilvægi ríks og fjölbreytts orðaforða
Nauðsyn þess að geta tjáð skoðanir sínar á lesefni sínu
Mismunandi textum og framsetningu þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota sér fjölbreytta og mismunandi texta til fróðleiks og skemmtunar
Nýta sér hljóðbækur og önnur hjálpartæki
Finna sér lesefni við hæfi
Miðla og segja frá því sem lesið er
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Gera grein fyrir því sem hann les munnlega eða skriflega
Tengja texta við eigið líf og lífsreynslu
Gera sér grein fyrir þeim tíma sem textinn er skrifaður
Ná betri árangri almennt í sínu námi með meiri færni í lestri
Í áfanganum er símat alla önnina. Verkefni, dagfar, viðvera og vinnusemi, ábyrgð og framfarir – allt er þetta metið í lokin. Nemendur halda dagbók/skrá yfir það sem lesið er.