Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490795934.31

    Lestur
    LESA1AN03
    1
    Lestur
    Almenn námsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á lestur, m.t.t. leshraða, lesskilnings og aukins orðaforða. Unnið er markvisst að eflingu lesskilnings og mikilvægi þess að nemendur njóti lestrar, bæði til gagns og gamans. Þá eru stundir (tímar/vinnustofur) þar sem nemendur greina frá því sem þeir eru að lesa og bera saman bækur sínar. Hver og einn heldur dagbók eða ská yfir lesefni sitt alla önnina.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi þess að vera sæmilega læs á alla almenna texta
    • Mismunandi textum og hvar og hvenær þeir verða til
    • Mikilvægi góðs orðaforða
    • Skemmtana – og notagildi hinna ýmsu bókmennta.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Finna sér lesefni við hæfi og getu
    • Nýta aukna lestrargetu til aukins lestrar og framfara í námi
    • Segja frá og taka þátt í umræðum um lesefni sitt hverju sinni
    • Nýta sér ýmis hjálpartæki við námið, s.s. ýmsa námsvefi, hljóðbækur o.fl.
    • Halda dagbók eða skrá yfir það sem lesið er á önninni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Hagnýta sér á sem árangursríkastan hátt styrkleika sína við nám
    • Að segja frá og hlusta á aðra
    • Meta gott lesefni og hafa af því bæði gagn og gaman
    • Meta eigið starf/lesturinn yfir önnina
    • Sýna af sér ábyrgð og skipulag við námið.
    Í áfanganum er símat alla önnina. Verkefni, dagfar, viðvera og vinnusemi, ábyrgð og framfarir – allt er þetta metið í lokin.