Í áfanganum eru undirstöðuatriði leiklistarsögunnar kennd og verkefni gerð um helstu tímabil sögunnar. Farið í gegnum það hvernig þekking á sögunni er undirstaða skapandi leikhúsvinnu
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu tímabilum leiklistarsögunnar
tengslum mannkynssögu, menningarsögu og leiklistarsögu
helstu atriðum íslenskrar leiklistarsögu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla sér upplýsinga um stefnur og strauma í leiklistarsögunni
kynna niðurstöður og verkefni sín með skýrum hætti
nýta leiklistarsöguna við hugmyndavinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
staðsetja verk í sögulegum tíma
taka þátt í umræðum um stefnur og strauma í leiklistarsögunni
kynna mismunandi stíla sögunnar með stuttum senum og sýnidæmum