Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490795500.35

    Námstækni
    NÁMT1AB02
    2
    námstækni
    Almenn námsbraut framhald
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Lögð er áhersla á það að hver og einn haldið áfram að styrkjast sem námsmaður, verði sífellt meðvitaðri um eigin styrkleika og veikleika og vinni með þær upplýsingar. Horft er til þess hvað gekk vel og hvað miður á fyrri önn og lærdómur af því dreginn. Nemendur kynna sér fjölgreindarkenninguna og rýna í hana með tilliti til þess að geta að einhverju marki mátað sig við hana, þ.e. styrkleika og veikleika.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Sem fjölbreytilegustum leiðum við nám, þannig að hver og einn finni sína aðferð sem fyrst og geti haldið áfram að þróa sínar námsaðferðir
    • Mikilvægi þess að hafa gott skipulag og reglu á námi og öðru skólastarfi, s.s. heimavistar – og félagslífi
    • Þeirri ábyrgð sem felst í því að stunda nám og setja sér markmið í lífi og starfi. vera hluti af heimavistarskóla í sveit
    • Mikilvægi þess að vera hluti af heimavistarskóla í sveit þar sem allir skipta miklu máli og hafa ákveðin hlutverk
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Hagnýta sér aukna þekkingu á eigin færni í námi og öðru skólastarfi
    • Vinna með og takast á við þá þætti sem þarf að bæta og lagfæra til að viðunandi árangur náist
    • Nýta sér ýmis hjálpartæki við námið, s.s. ýmsa námsvefi, hljóðbækur o.fl.
    • Afla sér upplýsinga á sem fjölbreytilegastan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leggja mat á eigin færni og efla allt sitt nám
    • Beita þeim námsaðferðum sem hann er sterkastur í til árangurs
    • Kynna sér nýjar aðferðir við að nálgast þekkingu og staðreyndir
    • Sýna þroska og framfarir, ásamt ábyrgð á eigin námi og skólastarfi
    Í áfanganum er símat alla önnina. Öll verkefni, dagfar, viðvera, ábyrgð og þátttaka í starfi er metin til einkunnar.