Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490795054.26

    Að finna fjölina sína framhald
    LÍFS1AB02
    47
    lífsleikni
    Almenn braut framhald
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Haldið er áfram á svipuðum nótum og í áfanganum á undan. Farið er yfir mikilvægi þess að allir nemendur finni fjölina sína í lífinu og fái að blómstra og njóta mismunandi hæfileika sinna. Markvisst er leitað að styrkleika hvers og eins og nemendur hvattir til frumkvæðis og sköpunar í starfi og leik. Mikið er lagt upp úr viðveru nemenda og heilbirgðu líferni til líkama og sálar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Því hvað við köllum lífsleikni – því að lifa lífinu í sátt við sjálfa/n sig og aðra
    • Mikilvægi heilbrigðs lífernis – svefn, næring, samskipti og hreyfing er í forgrunni
    • Heilsueflandi framhaldsskóla og verkefnum hans
    • Þeirri ábyrgð að vera framhaldsskólanemandi og þjóðfélagsþegn
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Meta mikilvægi lífsleikni sem námsgreinar á framhaldsskólastigi
    • Mikilvægi heilbrigðs lífernis – svefn, næring, samskipti og hreyfing er í forgrunni
    • Greina og meta eigið líf og starf í skólanum í samhengi við meginmarkmið átaksins Heilsueflandi framhaldsskóli
    • Miðla og gefa af sér í samskiptum og samkennd skólasamfélagsins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í almennum umræðum um hin ýmsu málefni
    • Styrkja eigið líf og annarra og geta átt uppbyggileg og jákvæð samskipti og samstarf við annað fólk
    • Taka þátt í þeim verkefnum á vegum Heilsueflandi framhaldsskóla sem skólinn leggur upp með hverju sinni.
    • Sýna af sér ábyrgð og góð samskipti í hvívetna
    Í áfanganum er símat alla önnina. Öll verkefni, dagfar, viðvera, ábyrgð og þátttaka í starfi er metin til einkunnar.