Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490646551.92

    Almenn efnafræði 2
    EFNA3AE05
    17
    efnafræði
    almenn efnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn byggir ofan á grunnþekkingu í efnafræði. Farið verður í efnajafnvægi og orkubreytingar efnahvarfa, hraðafræði efnahvarfa, jafnvægisfasta efnahvarfa og lögmál Le Chatelier‘s. Farið er í sýru- og basalausnir, títrun, búfferlausnir. Haldið verður áfram með leysni salta og leysnimargfeldi. Einnig verður farið í rafefnafræði, Galvaníhlöð og aðrar rafhlöður. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning þar sem ofangreindir efnisþættir eru fléttaðir saman. Einnig er áhersla lögð á framkvæmd verklegra æfinga sem tengjast efninu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og skýrsluskrifum.
    EFNA2AE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orkubreytingar í efnahvörfum og vermi
    • áhrifum hvata, hita, efnismagns og þrýstings á jafnvægi efnahvarfa
    • umhverfum efnahvörfum
    • útvermum og innvermum efnahvörfum
    • jafnvægislögmálinu og lögmáli Le Chateliers
    • myndun salta, leysnimargfeldi og myndun botnfalla
    • áhrifum samskonar jóna á jafnvægi fellingarhvarfa
    • sýrum og bösum, pH hugtakinu, sjálfsjónun vatns og sýru og basa klofningsföstum
    • muninum á römmum og veikum lausnum af sýru og bösum
    • sýru- og basapörum í vatnslausnum, búfferlausnum og sýru-basatítrun
    • spennuröðinni
    • galvaníhlöðum
    • sjálfgengum efnahvörfum og ákvörðun hraða efnahvarfa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • geta reiknað dæmi tengd hugtökunum hér að ofan
    • geta útskýrt þá þætti sem hafa áhrif á orkubreytingar við efnahvörf
    • geta notað lögmál Le Chatelier‘s til að spá fyrir um stöðu og breygingar á jafnvægi efnahvarfa m.t.t. hita, efnismagns og þrýstings
    • geta ákvarðað sýrustig lausna og ákvarðað jafnvægisstöðu með reikningum og hagnýtingu sýru og basa klofningsfasta
    • geta ákvarðað sýrustig lausna með títrun
    • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
    • skýra áhrif virkjunarorku og annara þátta á hraða efnahvarfa
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • átta sig á og rökstyðja hvaða reikniaðferðir eiga við hverju sinni við útreikninga í efnafræði
    • beita skipulegum aðferðum við útreikning lausna
    • tengja efnafræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum