Áfanginn veitir grunnþekkingu í efnafræði. Helstu efnistök eru samsetning atóma og læsi á lotukerfið, ólíkar gerðir efnatengja, helstu gerðir ólíkra efnahvarfa, læsi á efnajöfnur og tengsl þeirra við magnbundna útreikninga, hugtökin mól og styrkir efna í lausnum, ástand efna og gaslögmálin. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning þar sem ofangreindir efnisþættir eru fléttaðir saman. Einnig er áhersla lögð á framkvæmd verklegra æfinga sem tengjast efninu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og skýrsluskrifum.
RAUN1NÁ04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökunum atóm, frumefni, efnasamband, öreindir, samsætur og atómmassi
rafeindahýsingu frumefna, röðun rafeinda á undirhvolf, gildisrafeindum og áttureglunni
hleðslu jóna og algengra fjölatóma jóna, jónískum tengjum og nafnakerfi jónaefna
myndun samgildra tengja
nafngiftarreglum einfaldra ólífrænna efna
rafneikvæðni og skautun sameinda
stillingu efnajafna og hagnýtingu þeirra í magnútreikningum
hugtökunum formúlumassi, mól og mólmassi
hlutfallsreikningum efna í lausnum og efnahvörfum
fellingahvörfum og leysni jónaefna í vatnslausnum
sýru-basa hlutleysnihvörfum og skilgreiningum á sýrum og bösum
oxunar-afoxunarhvörfum, oxunartölum og reglunum sem að þeim lúta
lausnum og hugtökum tengdum þeim, s.s. leysir, leyst efni og felling
gaslögmálum Boyles, Gay-Lussac, Charles og Avogadros, sameinaða gaslögmálinu og kjörgaslögmálinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina á milli ólíkra efnafræðihugtaka
meðhöndla tölur og mælistærðir í efnafræði
reikna dæmi tengdum ofangreindum hugtökum í efnafræði
setja upp og stilla efnajöfnur
beita mólhugtakinu og tengja það hlutföllum í efnajöfnum
nota lotukerfið og lesa úr því upplýsingar
framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á og rökstyðja hvaða reikniaðferðir eiga við hverju sinni við útreikninga í efnafræði
beita skipulegum aðferðum við útreikning lausna
tengja efnafræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum