Farið nánar í grunnatriði ensku og örlítið flóknari texta í ritun og lestri.
ENSK1UE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
aðalatriðum enskrar málfræði
helstu þáttum ritaðs máls
lestri texta um einföld málefni
daglegu töluðu máli hvað varðar tjáningu og hlustun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita málfræðireglum á viðeigandi hátt í töluðu og rituðu máli
tjá sig og skilja talað mál
lesa og skilja einfalda texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tala og rita málfræðilega rétt
halda uppi samræðum um einföld málefni
lesa og skilja einfalda texta sér til gagns og gamans
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.