Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490195421.87

    Undirbúningsáfangi í ensku
    ENSK1UE05
    36
    enska
    Undirbúningsáfangi í ensku
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    FL
    Farið verður yfir grunnatriði enska tungumálsins, málfræði, lestur, ritun, tjáningu og hlustun. Sérstök áhersla á málfræði, lestur og ritun.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnhugtökum enskrar málfræði
    • grunnatriðum ritunar
    • lestri einfaldra texta
    • grunnatriðum talaðs máls
    • skilning á einföldu töluðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota enska málfræði á viðeigandi hátt í töluðu og rituðu máli
    • rita einfalda texta á ensku
    • lesa og skilja einfalda enska texta
    • tjá sig og skilja einfalt enskt talmál
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tjá sig með réttri málfræðinotkun í töluðu og rituðu máli
    • vinna með enska texta í ritun og lestri
    • taka þátt í og halda uppi einföldum samræðum á ensku
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.