Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488987329.63

    Almenn sálfræði
    SÁLF2AA05
    18
    sálfræði
    almenn sálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er farið yfir upphaf sálfræðinnar, eðli, sögu og þróun í tengslum við helstu stefnur. Kynntir verða helstu fræðimenn, allt frá tímum Forn-Grikkja til okkar daga þar sem kenningar þeirra og rannsóknir verða til umfjöllunar. Fjallað verður um minnisaðferðir og námsörðugleika bæði á fræðilegan og hagnýtan hátt. Einnig verður vikið að starfssviði sálfræðinga og helstu undirgreinar, um sjálfsmynd, athafnir og tilfinningar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróun sálfræði og tengslum við aðrar fræðigreinar
    • hugmyndum sem móta helstu kenningar
    • helstu frumkvöðlum í greininni
    • hegðun og tilfinningum einstaklinga
    • helstu tegundum náms og algengustu námsörðugleikum
    • hagnýtu gildi sálfræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja eðli, sögu og þróun í tengslum við sálfræðina
    • beita algengustu hugtökum
    • bera saman kenningar og gildi þeirra
    • hagnýta sér minnis-og námsaðferðir
    • lesa og skilja fræðigreinina og tjá kunnátt sína á munnlegan og skriflegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir áhrifum umhverfis sem mótunaraðila
    • skilja samspil hugsunar, tilfinninga og hegðunar
    • tjá sig um einstaka efnisþætti á gagnrýninn hátt
    • afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
    • vinna að rannsókn og skila niðurstöðum á faglegan hátt
    Í áfanganum er unnið með símat þar sem verkefni gilda til einkunnar ásamt könnunum og ritgerð.