Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488893752.36

    Almennur byrjunaráfangi
    DANS2AA05
    21
    danska
    Almennur byrjunar áfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð aukin áhersla á lestur fjölbreyttari texta, ritun, skilning á töluðu máli og munnlega tjáningu. Lög er áhersla á að auka hagnýtan orðaforða og lesskilning. Auk þess að nemendur geti skilið inntak ritmáls- og talmálstexta sem fjalla um nokkuð sérhæft efni sem þeir þekkja til eða hafa áhuga á. Nemendur eru þjálfaðir í að nota algeng orð og orðasambönd í ræðu og riti. Farið verður í flóknari atriði en áður í danskri málfræði. Dönsk menning er kynnt með það að markmiði að vekja áhuga á henni. Nemendur vinna sjálfstætt og í hóp. Lögð er áhersla á að nemandinn beri ábyrgð á eigin námsframvindu og sé meðvitaður um mismunandi aðferðir og hjálpargögn til að tileinka sér tungumál.
    Grunnskólaeinkunn B eða dönskuáfangi á fyrsta þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi lestraraðferðum eftir tilgangi lesturs
    • danska málkerfinu til markvissar notkunar, bæði skriflega og munnlega
    • helstu menningarsvæðum þar sem danska er töluð
    • notkun helstu hjálpargagna, s.s. orðabókum, þýðingarvélum, uppsláttarritum og kennsluforritum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður sem og algengustu orðasambönd sem einkenna það
    • lesa fjölbreyttar gerðir texta sér bæði til gagns og gamans og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnisins
    • tjá sig skýrt í ræðu og riti um málefni sem hann hefur kynnt sér
    • beita meginreglum danskrar málfræði
    • nota orðabækur og viðeigandi hjálpargögn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja inntak ritmáls um almenn og sérhæfð efni sem hann þekkir til eða hefur áhuga á
    • skilja talað mál í samtali og fjölmiðlum
    • vera sjálfbjarga í upplýsingaöflun og notkun hjálpargagna
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu og eigin leiðir til að tileinka sér málið
    Í áfanganum er viðhaft leiðsegjandi mat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega. Nánar er kveðið á um námsmat í kennsluáætlun.