Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488461041.23

    Merkir atburðir í sögunni
    SAGA1AB04
    11
    saga
    Almenn námsbraut framhald
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Áfangalýsing: Þetta er síðari söguáfanginn á almennri námsbraut. Hér er um að ræða þemaáfanga þar sem tekin eru fyrir atriði/þemu úr Íslands- og mannkynssögu. Nemendur geta valið í hvaða röð þeir vinna viðkomandi atriði/þemu en þeir verða að skila vinnu úr a.m.k. 6 af 8 þáttum sem í boði eru. Þá geta nemendur lagt til einstaka þætti sjálfir.
    SAGA1AN04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Á þeim viðfangsefnum sem tekin eru fyrir í áfanganum og nemandinn velur sér til viðfangs hverju sinni.
    • Mismunandi tímabilum sögunnar og hvað einkennir þau aðallega
    • Mikilvægi þess að setja hlutina í sögulegt samhengi
    • Mismunandi gerðum heimilda og áreiðanleika þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Meta og greina þá viðburði sem teknir eru fyrir með aðstoð kennara.
    • Að staðsetja viðburði í tíma og rúmi og setja þá í sögulegt samhengi
    • Vinna eftir ákveðnum vinnuáætlunum og standast fyrirframgefnar tímaáætlanir.
    • Nýta sér ýmis hjálpartæki við námið, s.s. ýmsa námsvefi, hljóðbækur o.fl.
    • Afla sér upplýsinga á sem fjölbreytilegastan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vinna sem fjölbreytilegust verkefni og gera góða grein fyrir þeim
    • Geta sótt sér og nýtt á sem bestan hátt haldgóðar og fjölbreyttar heimildir.
    • Verða fær í samstarf og samvinnu við aðra samnemendur í áfanganum
    • Velja fjölbreytilegar aðferðir við að koma þekkingu sinni á framfæri.
    Í áfanganum er símat alla önnina. Öll verkefni, dagfar, viðvera og vinnusemi, ábyrgð og þátttaka í starfi er metin til einkunnar.