Nám á almennri námsbraut er að miklu leyti einstaklingsmiðað og því vinna nemendur eftir einstaklingsnámskrá, það á einnig við um sögunám. Í upphafi áfangans kynna nemendur sér sögu heimabyggðar eins og hún er kynnt á heimasíðu viðkomandi byggða, einnig leita þeir fanga víðar. Þá skoða nemendur Vesturferðir Íslendinga á síðari hluta 19. aldar og í upphafi þeirrar 20. Í viðbót við þetta eru frjáls verkefni þar sem lögð er áhersla á sem fjölbreytilegastar vinnuaðferðir og afurðir.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi þess að hafa yfir að ráða sem fjölbreytilegustum vinnuaðferðum við námið
Að allar byggðir og staðir eiga merka sögu, líka heimabyggðir.
Mikilvægi þess að geta sett sögu heimabyggðar í víðara samhengi t.d. við atburði í Íslands- og mannkynssögu þar sem það á við hverju sinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Meta með aðstoð kennara helstu hindranir við námið og hvernig finna má leiðir til að yfirstíga þær
Vinna eftir einstaklingsnámskrá eða öðrum vinnuáætlunum
Nýta sér ýmis hjálpartæki við námið, s.s. ýmsa námsvefi, hljóðbækur o.fl.
Afla sér upplýsinga á sem fjölbreytilegastan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Hagnýta sér á sem árangursríkastan hátt styrkleika sína við nám
Gera sér grein fyrir á hvern hátt áætlanagerð og skipulag vinnur með honum við leit að auknum námsárangri
Taka þátt í umræðum og hafa skoðun á því hvernig honur finnst best að læra
Sýna af sér ábyrgð og skipulag við námið
Í áfanganum er símat alla önnina. Öll verkefni, dagfar, viðvera og vinnusemi, ábyrgð og þátttaka í starfi er metin til einkunnar.