Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1488460560.05

    Námstækni
    NÁMT1AN02
    1
    námstækni
    Almenn námsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Nám á almennri námsbraut er að mestu leyti einstaklingsmiðað og því vinna nemendur oftast nær eftir einstaklingsnámskrá. Í upphafi náms er reynt að taka mið af námslegri stöðu hvers og eins þannig að hægt sé að vinna síðan út frá þeim upplýsingum. Áhersla er lögð á það að nemendur verði sem fyrst nokkuð meðvitaðir um styrkleika sinn og veikleika í námi og læri að vinna með þær upplýsingar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Sem flestum leiðum við nám, þannig að hver og einn finni sína aðferð sem fyrst
    • Mikilvægi þess að hafa yfir að ráða sem flestum vinnuaðferðum við námið Einstaklingsnámskrá og hvernig nýta má hana sem gott vinnutæki við að ná árangri í námi
    • Því að nám í framhaldsskóla krefst mikillar ábyrgðar hvers og eins ef árangur á að nást
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Meta með aðstoð kennara helstu hindranir við námið og hvernig finna má leiðir til að yfirstíga þær
    • Vinna eftir einstaklingsnámskrá eða öðrum vinnuáætlunum
    • Nýta sér ýmis hjálpartæki við námið, s.s. ýmsa námsvefi, hljóðbækur o.fl.
    • Afla sér upplýsinga á sem fjölbreytilegastan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Hagnýta sér á sem árangursríkastan hátt styrkleika sína við nám
    • Gera sér grein fyrir á hvern hátt áætlanagerð og skipulag vinnur með honum við leit að auknum námsárangri
    • Taka þátt í umræðum og hafa skoðun á því hvernig honur finnst best að læra
    • Sýna af sér ábyrgð og skipulag við námið
    Í áfanganum er símat alla önnina. Öll verkefni, dagfar, viðvera, ábyrgð og þátttaka í starfi er metin til einkunnar.