Í áfanganum er saga stjörnufræðinnar stuttlega rakin, fjallað um stjörnufræðina sem fræðigrein og farið er í kenningar um gerð, uppruna og þróun alheimsins. Þá er sérstök áhersla lögð á sólkerfið, bæði innri og ytri reikistjörnurnar, loftsteina og halastjörnur og aðferðir til rannsókna á þeim. Fjallað er um kenningar um uppruna efnisins, þróun fastastjarna og gerð og myndun svarthola. Þá er fjallað um rannsóknaráætlanir og nýjustu uppgötvanir og möguleika á sviði geimferða og -rannsókna. Áhersla skal lögð á verkefnavinnu; athuganir og tilraunir, stjörnuskoðun og nýtingu upplýsingatækni, s.s. stjörnufræðiforrita og líkana.
RAUN1NÁ04 - eða áfangi á fyrsta þrepi í efnafræði/eðlisfræði
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallaratriðum í sögu stjörnufræðinnar
uppbyggingu sólkerfisins og alheimsins
helstu kenningum um uppruna alheims og þróun hans, s.s. sístöðukenninguna og stórahvellskenninguna
helstu skeiðum í þróun fastastjarna allt frá fæðingu til endaloka þeirra sem hvítra dverga, nifteindastjarna eða svarthola
nútímaaðferðum stjörnufræðinga við rannsóknir á alheiminum, s.s. litrófsmælingum, geimrannsóknum og mælingum á rafsegulbylgjum
stöðu jarðar í sólkerfinu og geti rætt á faglegum grunni möguleika mannsins til rannsókna á alheiminum m.a. með tilliti til fjarlægðar í geimnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Tjá sig í ræðu og riti um upphaf alheimsins og sögu stjörnufræðinnar
Tjá sig í ræðu og riti um þróun fastastarna
Tjá sig í ræðu og riti um nútímaaðferðir stjörnufræðinga og möguleika mannsins til rannsókna í alheiminum.
Finna þekktar stjörnur á himinhvolfinu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa þau verkefni sem fyrir hann eru lögð í áfanganum
beita þeim reikniaðferðum sem kenndar eru í áfanganum
leysa verklegar æfingar og kynna niðurstöður þeirra
sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
bera ábyrgð á eigin námsframvindu
setja fram eðlisfræðileg umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
tengja stjörnufræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar