Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487935566.54

    List- og verkgreinaval
    LIVE1VA05
    1
    List- og verkgreinar
    List- og verkgreinaval
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í list- og verkgreinanámi er lögð áhersla á sköpun í víðum skilningi. Viðfangsefnin geta verið af ýmsum toga en öll miða þau að því að búa til eða gera eitthvað nýtt eða öðruvísi en viðkomandi kann eða hefur gert áður. Nemendum er gerð grein fyrir mikilvægi sköpunar í daglegu lífi einstaklingsins og sem þátttakanda í samfélaginu. Í stað þessa áfanga geta nemendur tekið annan/aðra áfanga í námsgreininni LIVE.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig hann getur unnið með áreiti og tengt það við fyrri þekkingu og skapað nýja
    • hvernig hægt er að beita sköpun, jafnt í handverki og hugverki
    • vinnubrögðum sem einkennast af sköpunargleði, frumkvæði og frumleika
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • móta viðfangsefni og miðla þeim
    • sjá fyrir það óorðna og framkvæma það
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skynja merkingu viðfangsefnanna og gildi þeirra
    • beita gagnrýninni hugsun og aðferðum
    • leysa viðfangsefni og leita nýrra möguleika
    Námsmat tekur mið af viðfangsefnum hverju sinni og er sett fram í kennsluáætlun.