Í áfanganum eru helstu sérkenni lífrænna efna skoðuð. Fjallað er um helstu flokka þeirra, nafnakerfi, eðlis- og efnaeiginleika og helstu efnahvörf og hvarfaganga. Mikil áhersla er lögð á efnafræðilega útreikninga og ritun mismunandi byggingarformúla í öllum helstu efnaflokkum. Reynt er að tengja efnið reynsluheimi nemenda á sem fjölbreyttastan hátt með skýrskotun til daglegs lífs og óhjákvæmilegrar efnanotkunar nútímans. Einnig er áhersla lögð á framkvæmd verklegra æfinga sem tengjast efninu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og skýrsluskrifum.
EFNA3AE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sp, sp2 og sp3 svigrúmablöndun kolefnis
eðlis- og efnafræðilegum eiginleikum helstu flokka lífrænna efna, s.s. alifatískra og arómatískra kolvetnissambanda, halógensambanda, alkóhóla, etera, aldehýða, ketóna, karboxýlsýra og afleiða þeirra s.s. estera, anhýdríða, amíða, halíða og amína
IUPAC nafnakerfinu
helstu efnahvörfum og hvarfagöngum lífrænna efna s.s. skiptihvörfum (SN1 og SN2), fráhvörfum, álagshvörfum alkena, rafsæknum skiptihvörfum arómata
fjölliðun nokkurra algengra samtengdra efna
brunagreiningum og massarófi og niðurstöðum þeirra
efnahvörfum milli mismunandi flokka lífrænna efna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja helstu gerðir og samsetningu lífrænna efnatengja
þekkja helstu gerðir virkra hópa lífrænna efnasambanda
rita kerfisbundin (IUPAC) nöfn út frá byggingu lífrænna efnasambanda
teikna upp byggingu lífrænna efnasambanda út frá kerfisbundnum (IUPAC) nöfnum þeirra
útskýra hvarfaganga fyrir myndun algengra lífrænna efnasambanda
reikna út reynslu- og sameindaformúlu lífrænna efnasambanda úr niðurstöðum ólíkra greiningaraðferða
greina á milli ólíkra hugtaka í lífrænni efnafræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á og rökstyðja hvaða reikniaðferðir eiga við hverju sinni við útreikninga í lífrænni efnafræði
beita skipulegum aðferðum við útreikning lausna
skilja mikilvægi virkra hópa í lífrænni efnafræði og geta hagnýtt sér þekkinguna á öðrum sviðum efnafræðinnar
tengja efnafræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum