Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487934409.83

    Lífefnafræði
    EFNA3LE05
    15
    efnafræði
    lífefnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Leitast er við að gefa góða yfirsýn yfir helstu efnisþætti lífefnafræðinnar. Fjallað er um gerð, eiginleika og efnahvörf helstu byggingarefna, orkuefna og stjórnefna lífvera. Einnig er fjallað um efnaskipti þessara sömu efna í frumum líkamans þar sem helstu niðurbrots- og nýmyndunarferlum er lýst á sameindagrunni. Efnið tengist mjög víða reynsluheimi nemenda og má þar nefna umfjöllun um helstu orkuefni, næringu, fitubrennslu, megrun og offitu og áhersla á að sem flestir læri að taka ábyrgð á eigin heilsu á grundvelli þekkingar en láti ekki blekkjast af gylliboðum.
    LÍOL2LA05, RAUN1NÁ04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kolhýdrötum, sykrum og uppruna lífheimsins
    • flokkun sykra og formúluritun í Fischervörpun
    • undirflokkum einsykra og ættartrjám aldósa og ketósa
    • ferflötungslaga hendimiðju, álægum og óálægum spegilmyndum og D og L gerðir sykra
    • keðju- og hringformúlum glúkósa og α- og β- gerðir einsykra
    • afleiðum einsykra
    • tvísykrum, gerðum sameinda og tengjum milli þeirra
    • fjölsykrum og glýkósíðtengjum
    • gerð, hlutverk og flokkun fituefna, mettaðri og ómettaðri fitu, cis, trans, ω-3 og ω-6
    • helstu efnahvörfum lípíða; þránun, herðingu, vatnsrofi, sápun
    • sterum og sterólum, kólesteróli, barksterum, gallsýrum, D-vítamíni, sterum sem lyf, anabólískum sterum, bólgueyðandi sterum og getnaðarvörnum
    • próteinum og peptíðum, aminósýrum og flokkun þeirra og peptíðtengjum
    • 1. – 4. stigs byggingu próteina og eðlissviptingu próteina
    • ensímum og ensímvirkni
    • helstu efnaferlum innri efnaskipta; öndunarkeðjunni og myndun ATP í hvatberum, Krebs-hringnum, sykurrofi, fitusýruhringnum, niðurbroti aminósýra og þvagefnishringnum.
    • samþættingu niðurbrotsferla sykra, fitusýra og aminósýra og nýmyndunarferlum sömu efna
    • hvernig röskun efnaskipta getur leitt til sjúkdómseinkenna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina milli helstu gerða lífefnafræðilegra sameinda og flokkun þeirra
    • skilgreina helstu efnaskiptaferla lífheimsins
    • þekkja uppbyggingu og samsetningu próteina, allt frá DNA til virkra sameinda og byggingareininga þeirra
    • hafa heildarsýn yfir efnaskipti líkamans
    • geta sagt fyrir um hvernig röskun á gerð eða samsetningu lífefna getur leitt til sjúkdómseinkenna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja lífefnafræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • taka meðvitaðar ákvarðanir varðandi eigin heilsu
    Námsmat fer fram með símati; tímakönnunum, verkefnaskilum og verklegum æfingum