Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487933813.04

    Aðferðafræði
    ADFE3RA05
    3
    Aðferðafræði
    Rannsóknir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur kynnast ólíkum rannsóknaraðferðum og tengslum þeirra við mismunandi kenningar. Þeir læra um söfnun gagna, úrvinnslu þeirra og kynningu á þeim. Nemendur vinna rannsóknarverkefni og fá þjálfun í að beita eigindlegum og megindlegum aðferðum.
    Að hafa lokið sem svarar tveimur árum af námi á stúdentsbraut
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum aðferðum í rannsóknum
    • helstu viðfangsefnum og kenningum við öflun og úrvinnslu gagna í rannsóknum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að meta tilgang félags- og náttúruvísinda
    • greina kosti og galla mismunandi rannsóknaraðferða
    • safna gögnum, vinna úr þeim og kynna niðurstöður í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta áreiðanleika og réttmæti rannsókna á sviði félags- og náttúruvísinda
    • beita rannsóknaraðferðum félags- og náttúruvísinda
    • gera eigin rannsóknir
    Námsmatið er sífellt yfir alla önnina og samanstendur af t.d. þátttöku í áfanganum, munnlegum og skriflegum verkefnaskilum, einstaklings- og hópverkefnum.