Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487924411.7

    Byrjunaráfangi á 1. þrepi
    DANS1BA05
    12
    danska
    Byrjunaráfangi á 1. þrepi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er farið í grunnatriði danskrar málfræði og alla færniþætti málsins, þ.e. lesskilning, ritun, hlustun og tjáningu. Unnið með létta texta til að auka lesskilning, orðaforða og orðanotkun. Hlustun er þjálfuð. Stefnt er að því að gera nemendur færa um að skilja tiltölulega einfalda almenna texta. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn og unnið að því að gera viðhorf nemenda til tungumálsins jákvæð. Nemendur eru hvattir til sjálfstæðra vinnubragða samhliða símati.
    Áfanginn er hugsaður fyrir þá sem ekki ná B í grunnskólaeinkunn í dönsku
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mannlífi, menningu og siðum í Danmörku
    • dönskum orðaforða tengdum daglegu lífi, danski menningu og íslenskri
    • undirstöðuatriðum í danskri málfræði
    • algengum framburðarreglum
    • noktun hjálpargagna svo sem orðabóka og leiðréttingarforrita
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnuleg einföld efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar einfalda texta í samræmi við þekkingarviðmið
    • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á
    • tjá sig munnlega um einföld efni varðandi daglegt líf
    • þekkja helstu málfræðireglur og geta leitað í þær þegar þurfa þykir
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgjast með einföldum frásögnum um almenn efni
    • lesa sér til gagns og tjá sig skriflega um málefni tengd þekkingarviðmiðum
    • tjá sig á einfaldan hátt á dönsku
    • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
    Námsmatið er fjölbreytt og tengist öllum færniþáttunum. Byggt er á símati og því áhersla á að nemendur vinni jafnt og þétt og skili öllum verkefnum. Nánar er kveðið á um námsmat í kennsluáætlun.