Fjallað er í grundvallaratriðum um skiptingu mannfræðinnar í líkamsmannfræði og félags- og menningarmannfræði. Nemendur læra að skoða fjölþætt einkenni mannsins sem lífveru og félagsveru. Þá er menningarhugtakinu gerð ítarleg skil ásamt samanburðaraðferð og vettvangsathugun mannfræðinnar. Nemendur kynnast því hvernig mannfræðingar hafa beitt þessum aðferðum við gerð etnógrafía (þjóðlýsinga) á ólíkum samfélögum, þar sem fjallað er um mannlífsþætti og menningu, svo sem heimsmynd, lífsviðurværi og sifjar. Einnig eru rædd þau vandamál sem fylgja því að rannsaka og rita etnógrafíu og hvernig það tengist hugmyndum um framandleika og kunnugleika. Með markvissri notkun afstæðishyggju eru nemendur hvattir til að skoða menningarlegan margbreytileika mannlífsins nær og fjær. Fjallað verður um marga þætti, s.s. sifjakerfi, trú og tákn, stríð og frið og hagræna mannfræði.
FÉLA2KS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Fjórskiptingu mannfræðinnar
Sögu mannfræðinnar sem fræðigeinar
Rannsóknum erlendra og íslenskra mannfræðinga hérlendis og erlendis
Sértækum hugtökum mannfræðinnar
Sérstöðu mannfræðinnar og skyldleika hennar við aðrar greinar félagsvísinda
Nokkrum fjarlægum og nálægum menningarheimum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Leggja gagnrýnið mat á þróunarhugtakið, bæði hvað varðar líffræðilega og menningarlega þróun
Beita aðferðarfræði mannfræðinga
Skoða fjarlæg og nálæg samfélög í gegnum kenningargleraugu mannfræðinnar
Afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
Nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
Miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
Sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
Meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
Beita afstæðishyggju í umræðum um menningarleg málefni og þekki til takmarkana hennar
Símat alla önnina. Nánar tilgreint í kennsluáætlun og í samræmi við skólanámskrá.