Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487873150.36

    Lýðræði og mannréttindi
    FÉLA3LM05
    18
    félagsfræði
    Lýðræði og mannréttindi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga er fjallað um lýðræði og mannréttindi að fornu og nýju. Litið verður til sögunnar og hún rakin í grófum dráttum frá klassískri fornöld til nútímans með áherslu á mannréttindabaráttu síðustu alda. Greint verður sérstaklega frá kenningum John Locke, John Stuart Mill o.fl. og áhrifum þeirra á mannréttindi og sjálfstæði einstaklinga og þjóða metin. Mannréttindabarátta 20. aldar verður skoðuð sérstaklega. Má þar nefna stofnun Sameinuðu þjóðanna og samþykkt mannréttindayfirlýsingarinnar og þá verða mannréttindi sem birtast m.a. í stjórnarskrá Íslands skoðuð með tilliti til þeirrar umræðu sem á sér stað í samtímanum um mannréttindi og mannréttindabrot. Skoðaðir verða alþjóðlegir mannréttindasamningar og sáttmálar sem Ísland á aðild að og ljósi varpað á orðræðu samtímans. Kynntar verða helstu stofnanir sem vinna að mannréttindum og eru starfræktar á Íslandi. Sem dæmi má nefna Amnesty International, UniCef og UNWomen, o.m.fl.
    FÉLA2KS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Sögu mannréttindabaráttu
    • Helstu kenningum John Locke og John Stuart Mill o.fl.
    • Hugtökum og orðræðu tengt lýðræði og mannréttindum
    • Helstu samningum og sáttmálum samtímans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Leggja gagnrýnið mat á mannréttindahugtakið og velta fyrir sér bæði réttindum og skyldum
    • Beita hugtökum efnisins í riti og ræðu
    • Afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
    • Nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
    • Miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
    • Sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
    • Meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    Símat – nánar er kveðið á um námsmat í kennsluáætlun