Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487872165.34

    Kenningar og aðferðir í félagsvísindum
    FÉLA2KS05
    19
    félagsfræði
    kenningar, samélag
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er fjallað um frumkvöðla félagsfræðinnar og helstu sjónarhorn greinarinnar kynnt. Samfélagið er skoðað í ljósi mismunandi kenninga og fjallað er um nokkrar þekktar rannsóknir innan félagsvísinda. Farið er yfir vítt svið félagsfræðinnar og nemendur þjálfaðir í að beita félagsfræðilegu innsæi við túlkun á samfélagslefum málefnum. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á hugtökum sem kynnt eru í áfanganum, setji þau í fræðilegt samhengi og geti beitt þeim við túlkun og greiningu á samfélaginu, bæði almennt og á tiltekin viðfangsefni, s.s. fjölskyldu, skóla, fjölmiðla og heilsu. Helstu kenningar varðandi átök, samskipti og samstöðu (virni) eru skýrðar, ásamt viðhorfum sem kennd eru við póstmódernisma.
    SAMG1IF04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu frumkvöðla félagsfræðinnar og framlagi þeirra til greinarinnar
    • helstu sjónarhornum innan félagsfræðinnar
    • grunnatriðum aðferðafræði félagsfræðinnar
    • hugtökum eins og félagslegri lagskiptingu, frávikum, kynhlutverki og sjálfmynd
    • áhrifum fjölmiðla á samfélagið
    • hlutverki fjölskyldu og skóla
    • áhrifum samfélagsins/menningar og á heilsufar einstaklingsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita kenningum í félagsfræði til þess að skoða samfélagsleg málefni
    • beita félagsfræðilegu innsæi
    • beita aðferðum félagsfræðinnar
    • fjalla um og bera saman ólík sjónarhorn innan félagsfræðinnar
    • útskýra áhrif kenninga á samfélagasleg viðfangsefni
    • afla sér þekkingar og upplýsinga um samfélagsleg málefni, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
    • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka þætti áfangans
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka þátt í umræðum um samfélagsleg málefni og mynda sér skoðanir sem byggjast á gagnrýninni hugsun
    • framkvæma einfalda rannsókn og átta sig á helstu niðurstöðum
    • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á námi sínu og vinna í samvinnu við aðra
    Námsmatið er fjölbreytt og sífellt yfir alla önnina. Leiðsegjandi mat er haft að leiðarljósi. Nánari útfærsla á námsmati kemur fram í kennsluáætlun áfangans og er í samræmi við skólanámskrá