Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487864384.26

    Verkefnadrifið nám
    VEDN2VA05
    1
    Verkefnadrifið nám
    Valverkefni
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur móta verkefnið sjálfir, en efnistök eru háð samþykki viðkomandi kennara. Þeir geta valið viðvangsefni og tvinnað saman efni úr ólíkum námsgreinum (samþætting) eða leitað fanga út fyrir hefðbundið námsframboð. Allt verkefnið eða hluti þess getur verið á sviði list- og/eða verkgreina og hægt er að tengja það störfum á vinnumarkaði eða félagsstörfum í íslensku samfélagi. Áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð, einstaklingsmiðað og verkefnadrifið nám.
    Að hafa lokið sem svarar 2 árum af námi á stúdentsbraut
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig upplýsinga um viðfangsefnið er best aflað
    • hvernig vinnuaðferðir henta best miðað við það hvers eðlis verkefnið er
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til og tengja saman upplýsingar úr ólíkum áttum
    • afla upplýsinga, vinna úr þeim og setja fram með viðeigandi hætti sem hentar verkefninu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna sjálfstætt að viðamiklum verkefnum
    • kynna og/eða sýna/flytja verkefnið og bregðast við fyrirspurnum
    • velja sér og vinna með viðfangsefni sem tengist áhugasviði hans
    Námsmatið skipist í mat á áfangaskýrslum sem nemendur skila um framvindu verkefnisins og í mat á kynningu, sýningu eða flutningi á verkefninu.