Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465989214.51

    Golf
    ÍÞRG2GO02
    35
    íþróttagrein
    Golf
    Samþykkt af skóla
    2
    2
    Viðfangsefni áfangans er golf og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er bogfimi fyrir byrjendur og lengra komna. Í áfanganum verður farið gegnum grunnæfingar í golfi fyrir börn og byrjendur, notast við Snag-golf kennsluaðferðina auk þess að fara í gegnum æfingar fyrir lengra komna. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verekfni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.).
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir
    • reglum og hugmyndafræði í golfi
    • grunntækniatriðum íþróttarinnar, s.s. hald, staða, sveifla, pútt o.þ.h.
    • grunnleikfræði íþróttarinnar, s.s. mismunandi brautir og vellir, keppnisáætlun leikmanna o.þ.h.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp skipulagðan tímaseðil út frá getu iðkenda og markmiði tímans
    • meta reglur íþróttarinnar við að horfa á keppni
    • útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefnin
    • nýta leiki til kennslu grunntækniatriða leiksins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta eigin leik og annarra og koma með hugmyndir að því hvað má bæta og hvernig
    • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    • geta horft á golf og skilið leikinn, s.s. hvað er verið að dæma og útskýra þau atriði sem verið er að nota
    • bera ábyrgð á því að skipuleggja og framkvæma kennslu hjá samnemendum þar sem grunnatriði eru kennd
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.