Nemendur skipuleggja og framkvæma íþróttakennslu/íþróttaþjálfun í grunnskóla/leikskóla eða hjá íþróttafélagi undir handleiðslu íþróttakennara viðkomandi skóla eða formanns viðkomandi félags. Einnig skipuleggja nemendur a.m.k. eina keppni/mót og vinna að framkvæmd þess.
10 einingar í þjálffræði/íþróttafræði og 8 einingar í íþróttagrein
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu þáttum undirbúnings fyrir kennslu/þjálfun
Mikilvægi félagslegra og líkamlegra þátta í íþróttaiðkun barna
Námsskrám eða þjálfunarmarkmiðum sem vinnuveitandi setur upp
Því að starfa sem íþróttakennari/-þjálfari
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Stjórna kennslu/æfingum fyrir börn á grunnskóla/-leikskólaaldri
Bregðast við óvæntum breytum sem upp geta komið við kennslu/þjálfun barna
Nota sér þau áhöld og hjálpartæki sem í boði eru hverju sinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Halda úti kennslu/þjálfun fyrir börn án aðstoðar
Geta skipulagt tíma/æfingar útfrá þeim reglum/markmiðum sem vinna á eftir
Takast á við vandamál sem upp koma þegar unnið er með hóp af börnum
Áfanginn er verklegur og þurfa nemendur að uppfylla sína vinnuskyldu til fulls. Skila þarf öllum gögnum og verkefnum til að hægt sé að meta áfangann.